Ferill 57. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 59  —  57. mál.




Fyrirspurn


til félags- og jafnréttismálaráðherra um greiðslur Tryggingastofnunar til eldri borgara og öryrkja.

Frá Óla Birni Kárasyni.


     1.      Hvernig þróuðust heildargreiðslur Tryggingastofnunar til eldri borgara árin 2005–2017? Óskað er eftir upplýsingum um hvert ár á föstu verðlagi 2017.
     2.      Hvernig þróuðust heildargreiðslur Tryggingastofnunar til öryrkja árin 2005–2017? Óskað er eftir upplýsingum um hvert ár á föstu verðlagi 2017.
     3.      Hvernig þróaðist fjöldi eldri borgara sem fengu greiðslur frá Tryggingastofnun árin 2005–2017? Óskað er eftir upplýsingum um hvert ár.
     4.      Hvernig þróaðist fjöldi öryrkja sem fengu greiðslur frá Tryggingastofnun árin 2005– 2017? Óskað er eftir upplýsingum um hvert ár.
     5.      Hversu margir eldri borgarar höfðu á hverju ári 2005–2017 ekki aðrar tekjur en frá Tryggingastofnun?
     6.      Hversu margir öryrkjar höfðu á hverju ári 2005–2017 ekki aðrar tekjur en frá Tryggingastofnun?
     7.      Hversu margir öryrkjar fengu á hverju ári 2005–2017 greidda sérstaka aldursuppbót?
     8.      Hvernig þróuðust fjárhæðir ellilífeyris (samtals allir flokkar) á sama tímabili, miðað við óskertar greiðslur? Óskað er eftir upplýsingum um hvert ár, á föstu verðlagi 2017, annars vegar fyrir einstakling sem býr einn og hins vegar einstakling í sambúð.
     9.      Hvernig þróuðust fjárhæðir örorkubóta (án sérstakrar aldurstengdrar örorkuuppbótar) á sama tímabili miðað við óskertar greiðslur? Óskað er eftir upplýsingum um hvert ár, á föstu verðlagi 2017, annars vegar fyrir einstakling sem býr einn og hins vegar einstakling í sambúð.


Skriflegt svar óskast.