Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 115, 148. löggjafarþing 4. mál: mannvirki (faggilding, frestur).
Lög nr. 91 29. desember 2017.
Þingskjal 115, 148. löggjafarþing 4. mál: mannvirki (faggilding, frestur).
Lög nr. 91 29. desember 2017.
Lög um breytingu á lögum um mannvirki, nr. 160/2010, með síðari breytingum (faggilding, frestur).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum:- 1. málsl. verður svohljóðandi: Mannvirkjastofnun og byggingarfulltrúar hafa eftirfarandi frest til að afla sér faggildingar í samræmi við ákvæði 19. gr.:
- frest til 1. janúar 2019 til að afla sér faggildingar til að yfirfara séruppdrætti og annast úttektir,
- frest til 1. janúar 2020 til að afla sér faggildingar til að yfirfara aðaluppdrætti.
- Í stað ártalsins „2018“ í 3. málsl. kemur: 2020.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 28. desember 2017.