Ferill 104. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 172  —  104. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um biðlista á Vogi.

Frá Sigurði Páli Jónssyni.


    Hvernig hyggst ráðherra bregðast við löngum biðlistum á sjúkrahúsið Vog til þess að draga úr vanda þeirra sem þurfa á meðferð að halda, ekki síst útigangsfólks?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Vogur varð fyrir skerðingu árið 1995 vegna stefnubreytingar þáverandi ríkisstjórnar sem hefur ekki verið leiðrétt síðan.