Ferill 208. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 291 — 208. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um greiðsluþátttöku ríkisins í tæknifrjóvgunarmeðferðum.
Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.
Hafa reglur verið endurskoðaðar um greiðsluþátttöku ríkisins í tæknifrjóvgunarmeðferðum, m.a. með tilliti til greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í fyrstu glasafrjóvgunarmeðferð og greiðsluþátttöku óháð því hvort pör eða einstaklingar eigi barn fyrir, sbr. þingsályktun nr. 58/145 sem samþykkt var á Alþingi 8. september 2016? Ef ekki, hvenær er ráðgert að sú endurskoðun hefjist og að henni verði lokið?
Skriflegt svar óskast.