Ferill 228. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 321 — 228. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um lögskilnaði.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hversu margir lögskilnaðir hafa verið skráðir hjá þjóðskrá undanfarin fimm ár, sundurliðað eftir árum?
2. Hversu hátt hlutfall skráðra lögskilnaða á sama tímabili er eftir beinan lögskilnað fólks, þ.e. lögskilnað án undangengins skilnaðar að borði og sæng?
3. Hversu oft hefur þjóðskrá skráð fólk í hjúskap að nýju eftir skilnað að borði og sæng og eftir tilkynningu eða ósk málsaðila þar um? Óskað er upplýsinga síðastliðinna fimm ára, sundurliðað eftir árum.
Skriflegt svar óskast.