Ferill 372. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 496  —  372. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra og ráðuneytisstjóra.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hver var frá árinu 2006 árlegur fjöldi ferða sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra annars vegar og þeirra ráðherra sem fóru með málefnasvið hans og hins vegar ráðuneytisstjóra þessara sömu ráðuneyta til útlanda vegna starfa á vegum ráðuneytisins?
     2.      Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga hvors um sig vegna þessara ferða?
     3.      Hversu oft á hverju ári fengu ráðherra og ráðuneytisstjóri 1/ 3 hluta dagpeninga og hve oft 2/ 3 hluta?
     4.      Hverjar voru árlegar fjárhæðir, skipt á ráðherra og ráðuneytisstjóra, vegna hótelgistingar þeirra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
     5.      Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra eða ráðuneytisstjóra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytisins og í hve mörgum tilfellum endurgreiddu þeir þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
     6.      Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra og ráðuneytisstjóra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem þeir nutu erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?


Skriflegt svar óskast.