Ferill 257. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 521  —  257. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þórarni Inga Péturssyni um hlutfall íslenskra matvæla í innkaupum ráðuneyta.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvert var hlutfall íslenskra matvæla í innkaupum ráðuneytisins árið 2017?

    Upplýsingar um upprunaland matvæla sem keypt voru í ráðuneytinu eru ekki fyrirliggjandi. Rétt er að geta þess að ráðuneytið kaupir matvæli í óverulegum mæli, aðallega kaffi og ávexti.