Ferill 396. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 555  —  396. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um nýtingu vatnsauðlinda þjóðlendna.

Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.


     1.      Hver er stefna ráðherra um heimildir til nýtingar vatnsauðlinda sem tilheyra þjóðlendum til framleiðslu raforku í smáum stíl, þ.e. svonefndra smávirkjana með uppsett rafafl undir 10 MW?
     2.      Hvaða skilyrði eru að jafnaði lögð til grundvallar þegar teknar eru ákvarðanir um gerð slíkra nýtingarsamninga og hvaða upplýsinga er krafist í því sambandi?
     3.      Hvernig er endurgjald fyrir afnot þessara vatnsréttinda ákvarðað?


Skriflegt svar óskast.