Ferill 397. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 556  —  397. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um stuðningsúrræði fyrir nemendur í samræmdu prófi í íslensku.

Frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.


     1.      Hvert var hlutfall nemenda sem nýttu sér stuðningsúrræði í samræmdu prófi í íslensku árin 2014–2017? Svar óskast sundurliðað fyrir 4., 7. og 9. bekk og sömuleiðis eftir árum.
     2.      Hvert var hlutfall nemenda sem sóttu um undanþágu frá töku prófsins á sama tímabili eða voru fjarverandi í prófinu, vegna veikinda eða af öðrum ástæðum? Svar óskast sundurliðað fyrir 4., 7. og 9. bekk og sömuleiðis eftir árum.


Skriflegt svar óskast.