Ferill 297. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 560  —  297. mál.




Svar


ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ráðningar ráðherrabílstjóra.


     1.      Hversu margir umsækjendur voru um hverja stöðu ráðherrabílstjóra á tímabilinu 2009 til dagsins í dag og hversu margir umsækjendur af hvoru kyni voru um hverja stöðu?
    Ráðuneytið hefur ekki ráðið nýja ráðherrabílstjóra til starfa á því tímabili sem spurt er um.

     2.      Hvernig var hæfi umsækjenda metið og hver tók ákvörðun um ráðningu? Var tekið tillit til 26. gr. jafnréttislaga við ráðningar og til reglunnar um að ef starfsumsækjendur af gagnstæðum kynjum teljast jafnhæfir og það hallar á annað kynið á tilteknu starfssviði, þá beri að veita umsækjanda af því kyni starfið?
    Eins og fyrr segir hefur ráðuneytið ekki ráðið nýja ráðherrabílstjóra til starfa á því tímabili sem spurt er um og því ekkert ráðningarferli þar sem hægt hefði verið að hafa 26. gr. jafnréttislaga til hliðsjónar.