Ferill 412. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 580 — 412. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um fjölda vettvangsliða, bráðaliða og sjúkraflutningamanna.
Frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.
Hver er fjöldi starfandi vettvangsliða, bráðaliða og sjúkraflutningamanna á Íslandi? Svar óskast sundurliðað eftir starfsheitum og starfsstöðvum.
Skriflegt svar óskast.