Ferill 416. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.

Þingskjal 585  —  416. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar


um kynjavakt Alþingis.


Flm.: Kolbeinn Óttarsson Proppé, Andrés Ingi Jónsson, Ari Trausti Guðmundsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir.


    Alþingi ályktar að fela forseta að koma á fót kynjavakt Alþingis, sem geri úttekt á því hvort og hvernig kyn hefur áhrif á aðkomu að ákvarðanatöku innan Alþingis, hvernig ályktunum Alþingis og aðgerðaáætlunum ríkisstjórna í jafnréttismálum hefur verið framfylgt og skoði næmi Alþingis fyrir ólíkri stöðu kynjanna samkvæmt kynnæmum vísum Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU).
    Til að tryggja fjölbreytt sjónarmið komi þátttakendur í kynjavakt Alþingis úr ólíkum áttum. Að vinnunni komi bæði fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu, karlar og konur. Fulltrúi skrifstofu Alþingis sitji í hópnum, sem og fulltrúi starfsmanna Alþingis. Haft verði samráð við jafnréttisnefnd skrifstofu Alþingis.
    Kynjavaktin skili forseta Alþingis skýrslu fyrir 1. apríl ár hvert og forseti leggi skýrsluna fyrir Alþingi. Fyrstu skýrslunni verði skilað fyrir 1. apríl 2019. Sérstaklega verði könnuð vinnustaðamenning Alþingis með tilliti til samskipta kynjanna.
    Á meðal þeirra upplýsinga sem teknar verði saman og stuðst við verði:
          listi yfir konur og karla sem sæti eiga á Alþingi (nú og á síðustu átta árum),
          listi yfir konur og karla í áhrifastöðum innan Alþingis (nú og á síðustu átta árum),
          listi yfir þingmenn í öllum nefndum Alþingis eftir kyni, þ.m.t. í áhrifastöðum, svo sem þingflokksformenn og varaformenn þingflokka (nú og á síðustu átta árum),
          listi yfir starfsfólk Alþingis eftir kyni, þ.m.t. í áhrifastöðum (nú og á síðustu átta árum),
          þingsköp og starfs- og siðareglur Alþingis,
          öll lög sem tengjast kynjajafnrétti sem samþykkt hafa verið á Alþingi á síðustu átta árum,
          allar þær áætlanir sem í gildi eru um kynjajafnrétti,
          listi yfir konur og karla í áhrifastöðum í stjórnmálaflokkum,
          allar stefnur og áætlanir ríkisstjórnar, stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðuflokkanna er lúta að kynjajafnrétti,
          hver sú stefna Alþingis sem hefur áhrif á kynjajafnrétti (t.d. siðareglur, stefna gegn mismunun, samskiptastefna) og þær aðgerðaáætlanir sem í gildi eru,
          hvaðeina er lýtur að þátttöku Alþingis í starfi Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti, t.d. skýrslur Alþingis til nefndar um afnám misréttis gegn konum og allar umræður á Alþingi um þær skýrslur, þátttöku Alþingis í störfum umræddrar nefndar og á árlegum fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna, sem og allar skýrslur sem Ísland hefur gefið Sameinuðu þjóðunum síðustu fimm ár og snerta stöðu kynjanna.

Greinargerð.

    Þessi þingsályktunartillaga var fyrst flutt á 146. löggjafarþingi (409. mál) en varð ekki útrædd og er því endurflutt.
    Konur eru aðeins 23,4% þeirra sem sæti eiga á þjóðþingum heimsins. Þótt staðan sé betri hvað þetta varðar á Alþingi er full þörf á að gera úttekt á kynjajafnrétti innan Alþingis. Alþjóðaþingmannasambandið hefur gefið út vísa til þjóðþinga sem gera þeim kleift að meta kynjajafnrétti innan þeirra. Þar er tekið tillit til fleiri þátta en fjölda kvenna og karla og greint hvort bæði konur og karlar eigi aðild að ákvarðanatöku á öllum stigum og séu virkir þátttakendur.
    Fjölmörg þjóðþing hafa tekið upp slíka kynjavakt sem fylgist með jafnrétti kynjanna. Í Finnlandi er sérstök nefnd að störfum á vegum þingsins í þessum málum.
    Alþingi hefur á undanförnum árum samþykkt ýmsar stefnur og aðgerðaáætlanir í jafnréttismálum. Nokkuð hefur þó skort á eftirfylgni. Nefna má að framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum rann út vorið 2015, en ný var ekki samþykkt fyrr en í september 2016. Þá hefur ekki verið gerð heildstæð aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi síðan árið 2011.
    Kynjavaktinni er ætlað að meta stöðuna í þessum efnum og fylgja eftir þegar með þarf, svo og að greina aðstöðu kynjanna til að hafa áhrif og gera úttekt á þeim reglum og lögum sem í gildi eru varðandi jafnrétti kynjanna (e. gender sensitivity). Nauðsynlegt er að Alþingi fylgist betur með þróun þessa málaflokks en nú er. Alþingi sendi í ár fulltrúa á fund kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í fyrsta sinn frá hruni. Þar kom glögglega fram hve vægi kynjajafnréttis er mikilvægt á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
    Ísland stendur sig að mörgu leyti vel á þessum vettvangi og er á ákveðinn hátt til fyrirmyndar, ásamt því að styðja baráttu þeirra kvenna sem eiga í vök að verjast vegna fátæktar, stríðsátaka, karlrembu og ýmislegs fleira. Ísland hefur því að nokkru tvíþætt hlutverk, að vera til fyrirmyndar og sækja um leið fram, ásamt því að koma öðrum til varnar og aðstoðar.
    Hvað skrifstofuna varðar er mikilvægt að fylgjast með framgangi í starfi og kynjaskiptingu í ólíkum störfum á vettvangi þingsins. Í þeim efnum er mikilvægt að byggja á því starfi sem unnið er innan jafnréttisnefndar skrifstofu Alþingis. Staða starfsfólks er nokkuð önnur en staða þingmanna og um það gilda önnur lög og reglur sem geta t.d. haft bein áhrif á skyldur skrifstofunnar til að gæta jafnræðis kynja í ráðningum o.fl. Kynnæmir vísar Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) taka þó til þingsins alls, bæði til Alþingis sem lýðræðisvettvangs og löggjafarsamkundu sem og til skrifstofu Alþingis sem vinnustaðar opinberra starfsmanna.
    Kynjavakt Alþingis væri framsækið tæki í baráttunni fyrir fullu jafnrétti kynjanna innan Alþingis.
    Með hugtakinu „kynnæmir vísar“ er í tillögunni átt við vísa sem greina fólk eftir kyni, aldri og félags- og efnahagslegum bakgrunni. 1 Þeir eru hannaðir til að sýna breytingar á áhrifum kvenna og karla í tilteknu samfélagi og yfir tímabil. Vísarnir eru verkfæri til að meta áhrif íhlutunar í þágu kynjajafnréttis. Kyngreindar upplýsingar sýna hvort bæði konur og karlar eiga aðild að verkefnum sem þátttakendur og sem haghafar á öllum stigum. Nálgunin gerir ráð fyrir markvissri vöktun og árlegu mati í formi skýrslu til Alþingis.


1     www.ipu.org/pdf/publications/gender-toolkit-e.pdf