Ferill 10. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 601  —  10. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (kynferðisbrot).

(Eftir 2. umræðu, 22. mars.)


1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 194. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                  Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef beitt er ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.
     b.      Á eftir orðunum „mælt er fyrir um í 1. mgr.“ í 2. mgr. kemur: að beita blekkingum eða notfæra sér villu viðkomandi um aðstæður eða.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.