Ferill 256. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 663 — 256. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þórarni Inga Péturssyni um hlutfall íslenskra matvæla í innkaupum ráðuneyta.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvert var hlutfall íslenskra matvæla í innkaupum ráðuneytisins árið 2017?
Dómsmálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra svara sameiginlega fyrir kostnað innanríkisráðuneytisins á árinu 2017.
Úr bókhaldi ráðuneytisins má greina að keyptar máltíðir og kaffiveitingar (tegund 52810) og matvörur (tegund 52820) nema 0,4% af fjárheimildum ársins. Samkvæmt skýringum Fjársýslu ríkisins á tegundalykli bókast á ofangreindar tegundir m.a. kostnaður við tilbúna málsverði keypta til mötuneyta, framlag til matarfélaga og matstofa, matur hjá skyndibitastöðum, smurt brauð og kaffibrauð fyrir starfsmenn í vinnutíma og vörur til matargerðar fyrir mötuneyti.
Úr bókhaldi ráðuneytisins er ekki hægt að sundurgreina hlutfall íslenskra matvæla í innkaupum. Hins vegar er það stefna ráðuneytisins að velja íslenska matvöru við innkaup og því óhætt að fullyrða að hlutfallið sé verulegt.