Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 686  —  295. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ráðningar ráðherrabílstjóra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margir umsækjendur voru um hverja stöðu ráðherrabílstjóra á tímabilinu 2009 til dagsins í dag og hversu margir umsækjendur af hvoru kyni voru um hverja stöðu?
     2.      Hvernig var hæfi umsækjenda metið og hver tók ákvörðun um ráðningu? Var tekið tillit til 26. gr. jafnréttislaga við ráðningar og til reglunnar um að ef starfsumsækjendur af gagnstæðum kynjum teljast jafnhæfir og það hallar á annað kynið á tilteknu starfssviði, þá beri að veita umsækjanda af því kyni starfið?


    Staða ráðherrabílstjóra í ráðuneytinu hefur ekki verið auglýst laus til umsóknar á tímabilinu sem spurt er um. Núverandi bílstjóri fluttist til ráðuneytisins frá samgönguráðuneytinu í janúar 2011 á grundvelli vistaskipta. Fyrir vikið hefur ekki reynt á 26. gr. jafnréttislaga við ráðningu.