Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 713  —  304. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ráðningar ráðherrabílstjóra.


     1.      Hversu margir umsækjendur voru um hverja stöðu ráðherrabílstjóra á tímabilinu 2009 til dagsins í dag og hversu margir umsækjendur af hvoru kyni voru um hverja stöðu?
    Staða bílstjóra utanríkisráðherra hefur ekki verið auglýst á tímabilinu sem fyrirspurnin lýtur að. Bílstjórinn hefur verið í starfi sem ráðherrabílstjóri frá árinu 2013 og fluttist til utanríkisráðuneytisins frá öðru ráðuneyti, sbr. 19. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, og 2. mgr. 21. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands. Fyrir þann tíma var við störf bílstjóri sem var búinn að vera í starfi frá árinu 2001 og kom hann til starfa í ráðuneytinu frá lögreglunni.

     2.      Hvernig var hæfi umsækjenda metið og hver tók ákvörðun um ráðningu? Var tekið tillit til 26. gr. jafnréttislaga við ráðningar og til reglunnar um að ef starfsumsækjendur af gagnstæðum kynjum teljast jafnhæfir og það hallar á annað kynið á tilteknu starfssviði, þá beri að veita umsækjanda af því kyni starfið?
    Með vísan til svars við fyrri tölulið fyrirspurnarinnar, hefur staða bílstjóra utanríkisráðherra ekki verið auglýst á því tímabili sem fyrirspurnin lýtur að og því hefur ekki reynt á þau atriði sem vísað er til í þessu samhengi.