Ferill 511. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 741  —  511. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um umferðarlagabrot erlendra ferðamanna.

Frá Birgi Þórarinssyni.


     1.      Hvað hyggst ráðherra gera til þess að koma í veg fyrir að erlendir ferðamenn, sem sektaðir hafa verið vegna umferðarlagabrota, fari úr landi án þess að fullnægjandi greiðslur á sektum hafi borist eða fullnægjandi tryggingar fyrir greiðslu þeirra?
     2.      Í hverju felast fullnægjandi tryggingar að mati ráðherra og telur ráðherra að tryggingarnar hafi reynst fullnægjandi hingað til?


Skriflegt svar óskast.