Ferill 368. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 787  —  368. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra og ráðuneytisstjóra.



    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver var frá árinu 2006 árlegur fjöldi ferða fjármála- og efnahagsráðherra (áður fjármálaráðherra) annars vegar og hins vegar ráðuneytisstjóra til útlanda vegna starfa á vegum ráðuneytisins?
     2.      Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga hvors um sig vegna þessara ferða?
     3.      Hversu oft á hverju ári fengu ráðherra og ráðuneytisstjóri 1/3 hluta dagpeninga og hve oft 2/3 hluta?
     4.      Hverjar voru árlegar fjárhæðir, skipt á ráðherra og ráðuneytisstjóra, vegna hótelgistingar þeirra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
     5.      Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra eða ráðuneytisstjóra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytisins og í hve mörgum tilfellum endurgreiddu þeir þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
     6.      Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra og ráðuneytisstjóra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem þeir nutu erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?


    1. og 2. Sjá eftirfarandi töflu.

    3. Fjallað er um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins í reglum nr. 1/2009 sem tóku gildi í mars 2009. Þar kemur fram að ráðherrum og forseta Hæstaréttar skuli greiddir 2/ 3 hlutar dagpeninga, en 1/ 3 hluta dagpeninga ef um opinbera heimsókn er að ræða. Auk þess skal þeim greiddur ferða- og gistikostnaður, risnukostnaður og símtöl.
    Í eldri reglum um greiðslu ferðakostnaðar, nr. 39/1992, kom fram að ráðherrum og forseta Hæstaréttar skyldu greiddir fullir dagpeningar. Auk þess skyldi greiða ferða- og gistikostnað, risnukostnað og símtöl. Samkvæmt sömu reglum skyldi ráðuneytisstjórum, auk fleiri sem sérregla gilti um, greiddir 4/ 5 hlutar fullra dagpeninga, auk ferða-, gisti- og símakostnaðar.
    Með breytingunni árið 2009 lækkaði fjárhæð dagpeninga vegna ferða ráðherra sem endurspeglar m.a. þann kostnað sem óhjákvæmilega fellur til vegna ferðalaga og dagpeningagreiðslum er ætlað að standa undir. Að sama skapi var sérregla ráðuneytisstjóra og fleiri afnumin.
    Ráðherra fór í eina opinbera heimsókn á árinu 2013 og eina á árinu 2016. Fyrir þær ferðir fékk hann greiddan 1/ 3 hluta dagpeninga. Eins og áður hefur verið nefnt gilda ekki lengur sérreglur um dagpeninga ráðuneytisstjóra.

    4. Sjá eftirfarandi töflu. Í yfirliti ferðakostnaðar ráðuneytisstjóra má sjá að gjarnan er greiddur dvalarkostnaður. Á móti fellur gistihluti dagpeninga niður. Þetta fyrirkomulag leiðir ekki til kostnaðarauka fyrir ráðuneytið.

    5. Í 8. gr. reglugerðar nr. 1281/2014, um bifreiðamál ríkisins, segir að leggja skuli ráðherrum ríkisstjórnarinnar til bifreið til afnota vegna starfa sinna. Þar af leiðandi er ráðherra jafnan ekið til flugvallar í bifreið ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóra hefur ekki sérstaklega verið ekið til flugvallar í bifreið ráðuneytisins.

    6. Í 7. gr. reglna nr. 1/2009 segir að styrkir og hvers konar hlunnindi varðandi gistingu og fæði sem ríkisstarfsmenn njóta meðan á dvölinni stendur skuli koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum eftir því sem við á og unnt er að meta hverju sinni.
    Á ferðalögum ráðherra og/eða ráðuneytisstjóra ber við að gestgjafi eða sá aðili sem hýsir fund bjóði veitingar eða standi fyrir kurteisisviðburði sem hæfir tilefninu. Hefð hefur skapast fyrir því að leggja ekki sérstakt mat á umfangið þannig að það hafi leitt til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum.

Ferðir ráðherra erlendis 2006-2017.

Ár
Fjöldi ferða Dagpeningar Fargjöld Dvalarkostnaður
2006 8 568.950 1.105.535 452.770
2007 7 659.842 1.152.940 324.475
2008 11 1.146.631 1.254.820 904.921
2009 6 112.800 1.142.590 376.859
2010 7 0 1.150.206 270.566
2011 13 0 2.604.370 856.076
2012 3 220.302 469.450 269.264
2013 4 443.145 739.160 365.459
2014 7 510.263 1.364.430 799.948
2015 2 482.872 591.412 476.806
2016 6 416.521 1.251.193 329.303
2017 5 305.798 683.047 405.377

Ferðir ráðuneytisstjóra erlendis 2006-2017

Ár
Fjöldi ferða Dagpeningar Fargjöld Dvalarkostnaður
2006 9 627.996 1.030.520 505.279
2007 9 703.994 1.180.680 545.876
2008 9 868.025 1.387.003 545.464
2009 7 752.743 948.140 0
2010 7 378.876 1.267.893 445.505
2011 8 516.182 1.468.590 399.675
2012 4 332.121 671.500 479.892
2013 9 577.693 1.121.380 684.777
2014 6 351.760 737.840 426.998
2015 7 531.103 1.030.583 815.250
2016 8 463.351 1.140.244 623.723