Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 878, 148. löggjafarþing 247. mál: vátryggingastarfsemi (EES-reglur, eftirlitsstofnanir o.fl.).
Lög nr. 36 9. maí 2018.

Lög um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016 (EES-reglur, eftirlitsstofnanir o.fl.).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
  1. Á undan orðunum „27. gr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 2.–5. mgr.
  2. Við 5. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Reglurnar geta m.a. falið í sér ákvæði um gjaldþolskröfur, stjórnarhætti og upplýsingagjöf til Fjármálaeftirlitsins.


2. gr.

     Við 19. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
     Fjármálaeftirlitið skal setja reglur sem byggjast á tæknilegum framkvæmdastöðlum Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar um meðferð máls þegar starfsleyfi er veitt fyrir félag með sérstakan tilgang. Í reglunum skulu einnig vera ákvæði um form á eyðublöðum vegna gagnaskila skv. 6. tölul. 1. mgr.
     Fjármálaeftirlitið getur sett reglur sem byggjast á tæknilegum framkvæmdastöðlum Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar um meðferð mála vegna samvinnu og upplýsingaskipta milli eftirlitsstjórnvalda í aðildarríkjum þegar félag með sérstakan tilgang gerir ráð fyrir áhættu vegna vátryggingafélags sem er í öðru aðildarríki en þar sem félag skv. 1. mgr. hefur starfsleyfi.

3. gr.

     Við 25. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
     Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni um veitt starfsleyfi hér á landi.

4. gr.

     Á eftir 3. mgr. 30. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
     Fjármálaeftirlitið skal afhenda Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni árlega eftirfarandi upplýsingar:
  1. Meðaltal viðbótargjaldþolskröfu á hvert vátryggingafélag og dreifingu viðbótargjaldþolskrafna sem Fjármálaeftirlitið hefur lagt á árið á undan sem skal mælt sem hlutfall af gjaldþolskröfum og sýnt aðskilið fyrir:
    1. vátryggingafélög,
    2. líftryggingafélög,
    3. skaðatryggingafélög,
    4. vátryggingafélög sem reka bæði líftrygginga- og skaðatryggingastarfsemi,
    5. endurtryggingafélög.
  2. Hlutfall viðbótargjaldþolskrafna sem lagðar eru á skv. 1. mgr. 32. gr., sundurgreint skv. 1. tölul. þessarar málsgreinar.
  3. Fjölda vátryggingafélaga sem fá undanþágu frá reglubundnum gagnaskilum til Fjármálaeftirlitsins og fjölda vátryggingafélaga sem fá undanþágu frá því að skila lista yfir allar eignir skv. 6. og 7. mgr. 31. gr. ásamt umfangi gjaldþolskrafna, iðgjalda, vátryggingaskuldar og eigna, mældu, eftir því sem við á, sem hlutfall af heildarumfangi gjaldþolskrafna, iðgjalda, vátryggingaskuldar og eigna vátryggingafélaga hér á landi.


5. gr.

     Í stað orðsins „lífeyriseftirlitsstofnunarinnar“ í 13. mgr. 31. gr., 9. mgr. 44. gr., 5. mgr. 45. gr., 4. mgr. 49. gr., 2. og 3. mgr. 50. gr., 4. mgr. 57. gr., 1. og 2. mgr. 101. gr., 2. og 3. mgr. 103. gr., 2. mgr. 121. gr. og 173. gr. laganna kemur: lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar.

6. gr.

     Við 33. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
     Fjármálaeftirlitið getur óskað eftir aðstoð Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, skv. 19. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1094/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin) ef því er ekki heimilað að gera vettvangsathugun skv. 3. mgr. Sama gildir um eftirlitsstjórnvöld annarra aðildarríkja ef þeim er ekki heimilað að gera vettvangsathugun hjá vátryggingafélagi sem hefur útvistað starfsemi hér á landi, sbr. 2. mgr.
     Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni er heimilt skv. 21. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1094/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin) að taka þátt í vettvangsathugun vegna útvistaðrar starfsemi ef tvö eða fleiri eftirlitsstjórnvöld gera hana sameiginlega.

7. gr.

     Við 34. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
     Þegar vátryggingafélag með höfuðstöðvar í öðru aðildarríki, sem hefur stofnsett útibú eða veitir þjónustu hér á landi, hyggst yfirfæra vátryggingastofn sinn til annars félags, sem hefur starfsleyfi í aðildarríki, skal Fjármálaeftirlitið birta opinberlega tilkynningu vegna yfirfærslubeiðninnar skv. 3. mgr. ef vátryggingaráhættan er hér á landi.

8. gr.

     Í stað orðsins „sjálfstæðir“ í 1. málsl. og orðsins „sjálfstæði“ í 2. málsl. 7. mgr. 41. gr. laganna kemur: heilbrigðir; og: heilbrigði.

9. gr.

     Við 60. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
     Fjármálaeftirlitið getur sett reglur sem byggjast á tæknilegum framkvæmdastöðlum Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar þar sem fram koma tæmandi upplýsingar um hvað eigi að koma fram í tilkynningu um fyrirhuguð kaup eða aukningu á virkum eignarhlut.
     Fjármálaeftirlitið skal setja reglur sem byggjast á tæknilegum framkvæmdastöðlum Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar sem tilgreina nánar þau atriði sem hafa skal til hliðsjónar við mat á hæfi skv. 61. gr.

10. gr.

     Við 4. mgr. 69. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjármálaeftirlitið skal samþykkja fyrir fram ákvarðanir sem hafa í för með sér lækkun á gjaldþolsliðum vátryggingafélags, þ.m.t. endurkaupaáætlanir á eigin hlutabréfum.

11. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 117. gr. laganna:
  1. Við 4. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Eftirlitsstofnun EFTA tekur ákvörðun að beiðni Fjármálaeftirlitsins um það hvort aðstæður teljist mjög óvenjulegar eða óhagstæðar. Eftirlitsstofnun EFTA skal í samráði við Fjármálaeftirlitið meta hvort aðstæðurnar séu enn fyrir hendi og Eftirlitsstofnun EFTA lýsir því yfir í samráði við Fjármálaeftirlitið þegar aðstæður teljast ekki lengur mjög óvenjulegar eða óhagstæðar.
  2. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
  3.      Ef Fjármálaeftirlitið telur að fjárhagsstaða vátryggingafélags sem fær frest til að endurreisa fjárhag við mjög óvenjulegar og óhagstæðar aðstæður muni versna enn frekar getur það takmarkað eða bannað ráðstöfun vátryggingafélags á fjármunum og eignum þess. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja þar sem vátryggingafélagið hefur útibú eða starfsemi um aðgerðir sem það grípur til eftir því sem við á. Fái Fjármálaeftirlitið slíka tilkynningu um útibú eða starfsemi vátryggingafélags hér á landi frá eftirlitsstjórnvöldum annarra aðildarríkja skal það grípa til sömu aðgerða hér á landi gagnvart félaginu. Fjármálaeftirlitið skal tilgreina þær eignir sem falla undir slíkar aðgerðir.


12. gr.

     Við 7. mgr. 122. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjármálaeftirlitið skal einnig tilkynna Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni um afturköllun starfsleyfis.

13. gr.

     Við 127. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
     Fjármálaeftirlitið getur óskað eftir aðstoð Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, skv. 19. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1094/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin) ef eftirlitsstjórnvöld annarra aðildarríkja vinna ekki með því vegna annmarka á að útibú hér á landi fari að lögum þessum. Sama gildir um eftirlitsstjórnvöld annarra aðildarríkja ef Fjármálaeftirlitið vinnur ekki með þeim vegna útibúa þar.
     Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni og Eftirlitsstofnun EFTA um synjun á stofnun útibús hér á landi skv. 124. gr. og starfsemi hér á landi skv. 126. gr. Einnig skal Fjármálaeftirlitið tilkynna til hvaða ráðstafana hefur verið gripið skv. 3. og 4. mgr.

14. gr.

     Við 128. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
     Eftirlitsstjórnvöld aðildarríkja geta óskað eftir aðstoð Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, skv. 19. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1094/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin) ef þeim er ekki heimilað að gera vettvangsathugun hér á landi skv. 1. mgr. Sama gildir um Fjármálaeftirlitið ef það fær ekki að taka þátt í vettvangsathugun eftirlitsstjórnvalda annarra aðildarríkja hér á landi eða fær ekki að gera vettvangsathugun hjá útibúi vátryggingafélags í öðru aðildarríki.
     Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni er heimilt skv. 21. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1094/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin) að taka þátt í vettvangsathugun skv. 1. mgr. hér á landi ef tvö eða fleiri eftirlitsstjórnvöld gera hana sameiginlega.

15. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 130. gr. laganna:
  1. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
  2.      Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni um örðugleika sem koma upp vegna fyrirhugaðrar starfsemi vátryggingafélags utan aðildarríkja.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
  4.      Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni um fyrirhugaða starfsemi vátryggingafélags, sem hefur höfuðstöðvar utan aðildarríkja og útibú hér á landi, í öðrum aðildarríkjum. Einnig skal Fjármálaeftirlitið tilkynna það ef félag með höfuðstöðvar utan aðildarríkja eignast hlut í vátryggingafélagi og félagið verður af þeim orsökum talið útibú hér á landi.


16. gr.

     Við 173. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
     Með lögum þessum eru tekin upp þau ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/51/ESB, sem breytti m.a. tilskipun 2009/138/EB og reglugerð (ESB) nr. 1094/2010, sem ekki hafa þegar verið lögleidd hér á landi.

17. gr.

     Við 3. mgr. 174. gr. laganna bætist: að undanskilinni 3. mgr. 91. gr. a.

18. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 26. apríl 2018.