Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 881, 148. löggjafarþing 429. mál: stjórn fiskveiða (strandveiðar).
Lög nr. 19 26. apríl 2018.

Lög um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (strandveiðar).


1. gr.

     Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:
     
     a. (I.)
     Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 6. gr. a skal ráðherra til 31. ágúst 2018 heimila hverju skipi strandveiðar í 12 veiðidaga innan hvers mánaðar, mánuðina maí, júní, júlí og ágúst. Ráðherra getur með auglýsingu í Stjórnartíðindum stöðvað strandveiðar þegar sýnt er að heildarafli strandveiðiskipa fari umfram það magn sem ráðstafað er til strandveiða samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur um strandveiðar fyrir árið 2018.
     Heimilt er hverju strandveiðiskipi að landa ufsa án þess að sá afli teljist til hámarksafla skv. 5. tölul. 5. mgr. 6. gr. a. Um ufsa sem ekki reiknast til heimilaðs afla í hverri veiðiferð strandveiðiskips gilda eftirtalin skilyrði:
  1. Að aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn sérstaklega og skráður.
  2. Að aflinn sé seldur á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafurðir og andvirði hans renni til sjóðs, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, með síðari breytingum, sbr. þó 2. málsl. 3. mgr.
  3. Að hámarksaflamagn ufsa strandveiðitímabilið 2018 sé 700 tonn.

     Sé heimild skv. 2. mgr. nýtt skulu forráðamenn uppboðsmarkaðarins þar sem aflinn er seldur standa skil á andvirði hins selda afla að frádregnum hafnargjöldum og kostnaði við uppboðið. Þá skal útgerð skipsins fá 80% af andvirði selds afla sem skiptist milli útgerðar og áhafnar samkvæmt samningum þar um.
     Ráðherra skal með reglugerð kveða á um skiptingu landsvæða. Eingöngu er heimilt að veita skipi leyfi til strandveiða miðað við það landsvæði þar sem útgerð skips á heimilisfesti.
     
     b. (II.)
     Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 6. gr. a skulu eftirfarandi ákvæði gilda um veitingu strandveiðileyfa eftir landsvæðum á árinu 2018. Veita skal útgerð leyfi á því svæði þar sem heimilisfesti útgerðar viðkomandi fiskiskips var skráð 23. apríl 2018, en þó má útgerð velja sér það svæði sem hún hefur stundað veiðar frá í tvö ár af sl. þremur árum óháð heimilisfesti í dag.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi og gilda til og með 31. ágúst 2018.

Samþykkt á Alþingi 26. apríl 2018.