Ferill 580. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 934  —  580. mál.




Fyrirspurn


til félags- og jafnéttismálaráðherra um fjölda lífeyrisþega sem fá skertar greiðslur vegna búsetu erlendis.

Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.


     1.      Hversu margir lífeyrisþegar fengu á árunum 2010–2017 skertar almannatryggingagreiðslur vegna fyrri búsetu erlendis? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega (elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega). Óskað er eftir heildarfjölda lífeyrisþega sem fá skertar greiðslur vegna búsetu erlendis og eftir því hvort þeir eru búsettir á Íslandi eða erlendis.
     2.      Hversu margir þessara lífeyrisþega höfðu fyrir flutning til Íslands verið búsettir í ríkjum a) utan EES, b) innan EES og c) þar af á Norðurlöndunum? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega. Óskað er eftir heildarfjölda lífeyrisþega sem þetta gildir um, annars vegar fjölda sem búsettur er á Íslandi og hins vegar erlendis.
     3.      Hversu margir þessara lífeyrisþega fá engar lífeyrisgreiðslur frá almannatryggingum í fyrra búsetulandi? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega og einnig komi fram hvort milliríkjasamningur er í gildi milli Íslands og fyrra búsetulands.
     4.      Hversu margir lífeyrisþegar, sem hafa búið á Norðurlöndum, hafa fengið synjun um örorkulífeyri frá fyrra búsetulandi? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega.
     5.      Hversu margir lífeyrisþegar skv. 1. tölul. féllu í eftirtalda tekjuflokka á árunum 2010– 2017 (skattskyldar tekjur í nóvember ár hvert) sem miðast við allar skattskyldar tekjur:
        0–79.999 kr.,
        80.000–99.999 kr.,
        100.000–129.999 kr.,
        130.000–149.999 kr.,
        150.000–169.999 kr.,
        170.000–189.999 kr.,
        190.000–209.999 kr.,
        210.000 kr. eða hærri? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega.
     6.      Hversu margir lífeyrisþegar voru með heildartekjur undir framfærsluviðmiði án heimilisuppbótar skv. 2. mgr. 9. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, þ.e.:
        undir 174.946 kr. árið 2012,
        undir 181.769 kr. árið 2013,
        undir 188.313 kr. árið 2014,
        undir 193.962 kr. árið 2015,
        undir 212.776 kr. árið 2016,
        undir 227.883 kr. árið 2017? Svar óskast sundurliðað eftir árum og hópum lífeyrisþega.


Skriflegt svar óskast.