Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1076  —  88. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um óháða, faglega staðarvalsgreiningu fyrir nýtt þjóðarsjúkrahús.

Frá minni hluta velferðarnefndar.


    Markmið tillögunnar er að gerð verði óháð, fagleg staðarvalsgreining til að sjá hvar hagkvæmast og best væri að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús. Nefndinni bárust 11 umsagnir frá hagsmunaaðilum þar sem ýmis sjónarmið komu fram.
    Helstu áhyggjur sem komu fram í umsögnum og hjá gestum eru að ný staðarvalsgreining muni koma til með að tefja uppbyggingu nýs spítala og að verkefnið í heild sinni þoli enga bið. Til að mynda kom fram það sjónarmið að allt frá aldamótum hafi átta ríkisstjórnir fjallað um málið og þá hafi fjöldi staðarvalsgreininga sýnt Hringbrautarlóðina sem besta kostinn. Enn fremur kom fram að nálægð við Háskóla Íslands sé órjúfanlegur áhrifaþáttur.
    Þeir gestir sem mættu á fund nefndarinnar sem studdu nýja staðarvalsgreiningu bentu á að húsakostur Landspítalans virtist vera í miklu verra ástandi og henta mun verr en ráð var fyrir gert þegar forsendur staðarvals byggðust á því að mikilvægt væri að nýta gamla húsnæðið. Fyrir liggur að endurnýja þarf nánast allt núverandi húsnæði spítalans. Áhyggjur hafa verið uppi um að núverandi staðsetning henti illa út frá umferðartengingum innan höfuðborgarsvæðisins og við landið allt. Talað er um að forsendur séu brostnar. Á meðan staðarvalsgreiningin fer fram mun starfsemi Landspítalans, sem og uppbygging við Hringbraut, halda áfram ótrufluð. Vitað er að gömlu Landspítalabyggingarnar verða ýmist teknar í gegn eða rifnar og nýjar byggðar í staðinn. Það er óábyrgt að velta staðarvalinu ekki fyrir sér á þessum tímapunkti, þess vegna er nauðsynlegt að meta stöðuna.
    Ýmsar breytingar hafa orðið á undanförnum árum sem hafa verið til þess fallnar að auka kosti þess að endurskoða áform um staðsetningu spítalans. Brýnt er að tefja ekki nauðsynlegar úrbætur við Hringbraut og eða framtíðaruppbyggingu á nokkurn hátt. Óháð, fagleg staðarvalsgreining mun ekki hafa áhrif þar á né standa í vegi fyrir því að nauðsynleg frumhönnun nýtist að mestu áfram óháð staðsetningu. Sú vinna getur um leið verið til þess fallin að draga betur fram kosti og galla þeirra áforma sem unnið er út frá og staðsetningarinnar um leið. Núna er því rétti tíminn til að ræða hvort önnur staðsetning kunni að vera betri en Hringbraut miðað við núverandi aðstæður og það sem hefur breyst á síðustu árum. Sú vinna verður forsenda byggingar hins nýja þjóðarsjúkrahúss, hvort sem það rís við Hringbraut eða annars staðar. Skipulag og byggingaráform hafa tekið tíðum breytingum frá því að fyrst var tekin ákvörðun um staðsetningu spítalans. Það eina sem ekki hefur breyst er staðsetningarvalið en eðlilegt er að meta þann þátt eins og alla hina um leið og þekkingin sem verður til verður notuð til að meta þessa sömu stöðu.
    Ekki hefur verið samstaða um málið á Alþingi á undanförnum árum. Árið 2015 var lögð fram þingsályktunartillaga um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut en henni var breytt í tillögu um að ráðast í nauðsynlegar endurbætur á húsnæði spítalans við Hringbraut. Einungis þannig náðist samstaða um þá tillögu. Það var í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar á þeim tíma en í stjórnarsáttmála hennar var því haldið opnu að skoða ætti hver besta framtíðarlausnin væri en um leið lögð áhersla á mikilvægi þess að ráðast í úrbætur á núverandi húsnæði Landspítala. Þar sagði: „Húsakostur Landspítala er óviðunandi. Leggja þarf áherslu á viðhald og endurbætur á núverandi húsa- og tækjakosti stofnunarinnar þar til varanleg lausn fæst.“
    Í ljósi þess að málið hefur dregist í meðförum nefndarinnar leggur minni hlutinn til að skýrslu ráðherra um niðurstöður staðarvalsgreiningar verði seinkað en hún eigi að vera tilbúin eigi síðar en 15. október 2018. Minni hlutinn tekur undir markmið tillögunnar og áréttar nauðsyn þess að greint verði á heildstæðan hátt hvar er hagkvæmast og best að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús með tilliti til allra helstu þátta og mælikvarða sem skipt geta máli. Minni hlutinn bendir á að slík greining getur orðið til að auka sátt um málið á þingi og meðal þjóðarinnar og leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

    Í stað orðanna „í maí 2018“ í lokamálslið tillögugreinarinnar komi: 15. október 2018.

Alþingi, 1. júní 2018.

Halldóra Mogensen,
form.
Anna Kolbrún Árnadóttir,
frsm.
Karl Gauti Hjaltason.