Ferill 565. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1192 — 565. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 64/2006, með síðari breytingum (sýndarfé og stafræn veski).
(Eftir 2. umræðu, 8. júní.)
1. gr.
a. Við 1. mgr. bætast tveir nýir stafliðir, o- og p-liður, svohljóðandi:
o. Þjónustuveitendur sem bjóða upp á viðskipti milli sýndarfjár, rafeyris og gjaldmiðla.
p. Þjónustuveitendur stafrænna veskja.
b. Í stað orðanna „m- og n-lið“ í 2. mgr. kemur: og m–p-lið.
2. gr.
11. Sýndarfé: Hvers konar stafrænt fé sem er hvorki rafeyrir í skilningi laga um útgáfu og meðferð rafeyris né gjaldmiðill.
12. Gjaldmiðill: Seðlar, mynt og aðrir gjaldmiðlar sem seðlabankar eða aðrir til þess bærir opinberir aðilar gefa út og er viðurkenndur lögmæltur gjaldmiðill.
13. Þjónustuveitandi stafrænna veskja: Einstaklingur eða lögaðili sem býður upp á vörsluþjónustu á auðkennum sýndarfjár, hvort sem er með hugbúnaði, kerfi eða annars konar miðli til að halda utan um, geyma og flytja sýndarfé.
3. gr.
4. gr.
a. Á eftir orðinu „verðmætasendingarþjónustu“ í 1. mgr. kemur: og þjónustuveitendur sem bjóða upp á viðskipti milli sýndarfjár, rafeyris og gjaldmiðla og þjónustuveitendur stafrænna veskja.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Skráningarskylda.
5. gr.
Þjónustuveitendur sem við gildistöku þessa ákvæðis bjóða upp á viðskipti milli sýndarfjár, rafeyris og gjaldmiðla og þjón ustu veitendur stafrænna veskja skulu óska eftir skráningu hjá Fjármálaeftirlitinu samkvæmt lögum þessum eigi síðar en einum mánuði frá gildistöku þessa ákvæðis. Fjármálaeftirlitið skal taka afstöðu til skráningarinnar innan 30 daga eftir að umsókn berst.
6. gr.