Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1359 — 680. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um starfshóp um endurskoðun eignarhalds á bújörðum.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
Hvernig miðar vinnu starfshóps um endurskoðun eignarhalds á bújörðum sem var skipaður af þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í júní 2017 og hvenær má vænta að hópurinn skili tillögum sínum til ráðherra?
Skriflegt svar óskast.