Ferill 99. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 167 — 99. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um kirkjujarðasamkomulagið frá 1997/98.
Frá Þorsteini Víglundssyni.
1. Hver hafa verið heildarútgjöld ríkissjóðs á verðlagi ársins 2017 vegna kirkjujarðasamkomulagsins frá 1997/98? Svar óskast sundurliðað eftir árum og einstökum liðum samkomulagsins.
2. Hefur verið lagt mat á framtíðarskuldbindingu ríkissjóðs vegna samkomulagsins og ef svo er, hver er hún?
3. Liggur fyrir eitthvert mat á þeim eignum sem skiptu um hendur samkvæmt samkomulaginu með hliðsjón af þeim greiðslum sem ríkissjóður hefur innt af hendi?
Skriflegt svar óskast.