Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.

Þingskjal 171  —  103. mál.
Breyttur texti.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um listamannalaun.

Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.


    Hversu margir hafa sótt um listamannalaun frá árinu 2009? Svarið óskast sundurliðað eftir móðurmáli umsækjenda. Ef gögn um móðurmál umsækjenda eru ekki tiltæk er óskað eftir því að sundurliðað sé eftir ríkisfangi, upprunalandi eða sambærilegum upplýsingum.


Skriflegt svar óskast.