Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 190 — 121. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um mengun af völdum plastnotkunar.
Frá Olgu Margréti Cilia.
1. Hvernig fylgist ráðherra með notkun plasts á Íslandi og mengun af völdum hennar?
2. Hverjar hafa verið niðurstöður af mælingum á notkun plasts og mengun af völdum hennar undanfarin ár?
3. Hvaða áætlanir eru í gildi um að draga úr slíkri mengun hér á landi?
4. Hversu mikið af plasti sem hent er á Íslandi er endurunnið í dag?
Skriflegt svar óskast.