Ferill 143. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 215  —  143. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um tillögur starfshóps um vímuefnaneyslu.

Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.


     1.      Hefur ráðherra hafið undirbúning að breytingum á lögum um ávana- og fíkniefni á þá leið að afnema fangelsisrefsingu fyrir vörslu á neysluskömmtum, sbr. tillögur í skýrslu starfshóps frá árinu 2016 um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum vímuefnaneyslu?
     2.      Hyggst ráðherra vinna að því að koma öðrum tillögum í niðurstöðum starfshópsins, sem heyra undir málefnasvið heilbrigðisráðherra, í framkvæmd á kjörtímabilinu?


Skriflegt svar óskast.