Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 216  —  144. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um gerð jarðganga milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar.

Frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur.


     1.      Hvernig miðar rannsóknum á gerð jarðganga milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar, Súðavíkurganga, og hvenær verða niðurstöðurnar birtar?
     2.      Telur ráðherra að Súðavíkurgöng verði sett á samgönguáætlun þegar hún verður endurskoðuð?


Skriflegt svar óskast.