Ferill 234. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 330  —  234. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um ökugerði.

Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.

     1.      Hvar eru ökugerði, þau sem skylt er að sækja vegna ökunáms, staðsett á landinu?
     2.      Hverjir eiga ökugerðin?
     3.      Hvað kostar sá hluti ökunáms sem fram fer í ökugerði?


Skriflegt svar óskast.