Ferill 376. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 500  —  376. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hver var frá árinu 2006 árlegur fjöldi ferða ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og þeirra ráðherra sem fóru með málefnasvið hans til útlanda vegna starfa á vegum ráðuneytisins?
     2.      Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga vegna þessara ferða?
     3.      Hversu oft á hverju ári fékk ráðherra 1/ 3 hluta dagpeninga og hve oft 2/ 3 hluta?
     4.      Hverjar voru árlegar fjárhæðir vegna hótelgistingar annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
     5.      Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra ekið út á flugvöll í bifreið ráðuneytisins og í hve mörgum tilfellum endurgreiddi hann þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
     6.      Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem hann naut erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?


Skriflegt svar óskast.