Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 742  —  512. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um áætlaðan kostnað við byggingarframkvæmdir Landspítalans við Hringbraut.

Frá Ólafi Ísleifssyni.


     1.      Hver er áætlaður kostnaður við fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir við sjúkrahús við Hringbraut?
     2.      Til hvaða framkvæmda og framkvæmdatíma tekur sú kostnaðaráætlun?
     3.      Hvert er umfang framkvæmda og fermetrafjöldi einstakra bygginga sem kostnaðaráætlun tekur til?
     4.      Hver gerði umrædda kostnaðaráætlun og hvenær var hún gerð?
     5.      Hefur Ríkisendurskoðun farið yfir umrædda kostnaðaráætlun og hafi svo verið, hverjar voru athugasemdir hennar?
     6.      Telur ráðherra að fyrirliggjandi kostnaðaráætlun sé raunhæf í ljósi þróunar byggingarkostnaðar á undanförnum mánuðum og misserum? Hvernig rökstyður ráðherra álit sitt í þessu efni?


Skriflegt svar óskast.