Ferill 533. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 777  —  533. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um börn sem sækja um alþjóðlega vernd.

Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.


     1.      Hversu mörg börn hafa frá árinu 2010 sótt um alþjóðlega vernd hér á landi, hversu mörg börn hafa hlotið slíka vernd og hversu mörgum börnum hefur verið vísað úr landi eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd? Svar óskast sundurliðað eftir árum og aldri barnanna þegar umsókn barst.
     2.      Hversu mörgum börnum sem eru fædd hér á landi hefur á hverju ári frá 2010 verið vikið úr landi eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd?


Skriflegt svar óskast.