Ferill 73. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 87 — 73. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um samkeppni í mjólkuriðnaði og stuðning við hann.
Frá Þorsteini Víglundssyni.
2. Hafa stjórnvöld lagt mat á áhrif þessara undanþágna eftir að lögin voru sett?
3. Hvernig hefur innflutningur á mjólk og mjólkurafurðum þróast á sama tíma og hvert er umfang hans í hlutfalli við innlenda framleiðslu?
4. Hvernig hefur verðþróun mjólkur og helstu mjólkurafurða verið á sama tíma? Óskað er sundurliðaðra upplýsinga um verðþróun mjólkur og helstu mjólkurafurða í samanburði við þróun:
a. vísitölu neysluverðs án húsnæðis,
b. verðs á matvöru almennt,
c. verðs annarrar drykkjarvöru, þ.e. gosdrykkja, vatns og ávaxtasafa,
d. verðs á kjötvöru,
e. verðs á grænmeti?
5. Hvernig hefur stuðningur við mjólkuriðnað þróast á gildistíma laga nr. 85/2004 sem hlutfall af stuðningi við landbúnað alls?
6. Hvernig hafa greiðslur til bænda og afurðastöðva þróast á föstu verðlagi á sama tímabili? Óskað er eftir sundurliðun eftir tegundum greiðslna.
Skriflegt svar óskast.