Ferill 602. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 967  —  602. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um lögreglumenn.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


     1.      Hversu margir lögreglumenn störfuðu við hvert lögregluembætti 1. febrúar ár hvert 2000–2018? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda fullmenntaðra lögreglumanna, fjölda afleysingafólks í lögreglu og fjölda héraðslögreglumanna.
     2.      Hver var fjöldi ársverka hvers lögregluembættis 1. febrúar ár hvert 2000–2018?
     3.      Hver var heildarkostnaður hvers lögregluembættis við stöðugildi lögreglumanns 1. febrúar ár hvert 2000–2018?


Skriflegt svar óskast.