Ferill 82. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 82  —  82. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013
(rusl á almannafæri, sektir).


Flm.: Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haraldsdóttir, Inga Sæland,
Jón Gunnarsson, Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Árnason.


1. gr.


    Á eftir 1. mgr. 17. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Öllum sem fara um hálendið og þjóðvegi landsins er óheimilt að fleygja rusli eða öðru þess háttar á almannafæri nema í þar til gerð ílát. Brot gegn ákvæði þessu varðar refsingu, sbr. 90. gr.

2. gr.


    Á eftir 2. mgr. 90. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Það varðar mann sektum að lágmarki 100.000 kr. ef hann brýtur gegn ákvæði 2. mgr. 17. gr.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður flutt á 143. löggjafarþingi (615. mál) og á 145. löggjafarþingi (87. mál).
    Rusl sem er fleygt á víðavangi er augljóst lýti á umhverfinu. Með því að láta slíkt framferði óáreitt sköðum við þau verðmæti sem felast í íslenskri náttúru. Erlendis er þekkt að greiða þarf háar sektir fyrir að henda rusli á víðavangi.
    Með frumvarpinu er lagt til að lögfestar verði aðgerðir til að halda náttúrunni hreinni og stuðla að bættu hugarfari.