Ferill 169. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 170  —  169. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um Ríkisútvarpið og þjónustusamning.

Frá Óla Birni Kárasyni.


     1.      Með hvaða hætti hefur Ríkisútvarpið uppfyllt ákvæði gr. 2.1.1. þjónustusamnings ráðherra og Ríkisútvarpsins ohf. um fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu 2016–2019, dags. 5. apríl 2016, um kaup af sjálfstæðum framleiðendum? Óskað er eftir sundurliðun fjárhæða eftir:
                  a.      árum,
                  b.      dagskrárefni, heiti þess og upplýsingum um framleiðendur og dagskrárgerðarmenn.
     2.      Hafa kaup Ríkisútvarpsins á dagskrárefni frá sjálfstæðum framleiðendum í einhverju tilfellum verið fjármögnuð með því að láta í té aðstöðu eða önnur efnisleg verðmæti? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um bókfærð verðmæti slíkra samninga eftir:
                  a.      árum,
                  b.      dagskrárefni, heiti þess og upplýsingum um framleiðendur og dagskrárgerðarmenn.
     3.      Hefur Ríkisútvarpið ohf. gert samninga við sjálfstæða framleiðendur um að fá hlutdeild í væntanlegum hagnaði vegna sölu til þriðja aðila á sjónvarpsþáttum, kvikmyndum og heimildarmyndum? Ef svo er, hverjar hafa tekjur Ríkisútvarpsins ohf. verið af slíkum samningum og hvernig hefur þeim fjármunum verið ráðstafað? Jafnframt er óskað eftir yfirliti yfir hvaða samningar af þessu tagi hafa verið gerðir.
     4.      Með hvaða hætti hefur ráðuneytið eftirlit með framkvæmd þjónustusamningsins?


Skriflegt svar óskast.