Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 413  —  206. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur um fulltrúa af landsbyggðinni í stjórnum, nefndum og ráðum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig er skipulagi og stuðningi háttað við einstaklinga sem hafa verið tilnefndir af þingmönnum og skipaðir í stjórnir, nefndir og ráð á vegum velferðarráðuneytisins og búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins? Hvernig er farið með kostnað við flug, akstur, gistingu og mat og annan kostnað sem hlýst af fundafyrirkomulaginu? Væri mögulegt að viðhafa þá reglu að tímasetja fundi þannig að fulltrúar af landsbyggðinni gætu nýtt sér innanlandsflug samdægurs?

    Ef til álita kemur að greitt sé fyrir útlagðan kostnað sem hlýst af störfum nefndarmanna, svo sem ferða- og gistikostnað, þá er almenna reglan sú hjá velferðarráðuneytinu að hlutaðeigandi tilnefningaraðili beri þann kostnað nema sérstaklega sé samið um annað fyrir fram. Þá er jafnframt reynt að haga því þannig að ráðuneytið og hlutaðeigandi tilnefningaraðili komi sér saman um starfstengdan kostnað sem hugsanlega hlýst af störfum nefndarmanna, svo sem ferða- og gistikostnað.
    Á hinn bóginn er almennt greiddur ferðakostnaður þeirra sem hafa verið skipaðir í nefndir eða starfshópa á vegum ráðuneytisins. Ætíð er gengið út frá því að landsbyggðarfulltrúar beri ekki persónulegan kostnað vegna fundarsóknar á vegum ráðuneytisins.
    Hvað varðar stjórnir þá er það yfirleitt í höndum viðkomandi stofnana eða sjóða að annast umsýslu og greiðslu kostnaðar. Formenn stjórna, nefnda og ráða ákveða fundartíma í samráði við aðra nefndarmenn og ber þeim ætíð að gæta hagkvæmni og jafnræðis við ákvörðun varðandi fundartíma og staðarval sem og að nota fjarfundabúnað ef tök eru á.