Ferill 199. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 716  —  199. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur um fulltrúa af landsbyggðinni í stjórnum, nefndum og ráðum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig er skipulagi og stuðningi háttað við einstaklinga sem hafa verið tilnefndir af þingmönnum og skipaðir í stjórnir, nefndir og ráð á vegum ráðuneytisins og búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins? Hvernig er farið með kostnað við flug, akstur, gistingu og mat og annan kostnað sem hlýst af fundafyrirkomulaginu? Væri mögulegt að viðhafa þá reglu að tímasetja fundi þannig að fulltrúar af landsbyggðinni gætu nýtt sér innanlandsflug samdægurs?

    Þegar um er að ræða einstaklinga sem tilnefndir hafa verið í nefndir og ráð á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins er samkomulag milli hlutaðeigandi tilnefningaraðila og ráðuneytisins um starfstengdan kostnað sem hugsanlega hlýst af störfum nefndarmanna, svo sem ferða- og gistikostnað. Slíkt er metið í hverju tilviki fyrir sig. Greitt er fyrir flug, bílaleigubíl eða aksturskostnað þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Annar kostnaður, svo sem gisting, matur og leigubílar, er greiddur samkvæmt reikningum og akstur samkvæmt akstursdagbók.
    Hvað varðar stjórnir þá er það yfirleitt í höndum viðkomandi stofnana, sjóða eða félaga að annast umsýslu og greiðslu kostnaðar vegna funda á þeirra vegum. Formenn stjórna, nefnda og ráða ákveða fundartíma í samráði við aðra fulltrúar í viðkomandi stjórn, nefnd eða ráði.
    Ekki hefur verið gerð sérstök athugun á því hvort tímasetning funda þar sem einhverjir fundarmanna þurfa að koma um langan veg taki mið af aksturstíma eða flugáætlunum enda gengið út frá því að svo sé.