Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 760 — 221. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi (ýmsar breytingar).
(Eftir 2. umræðu, 14. desember.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, með síðari breytingum.
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2. og 3. mgr. skulu mál ákvörðuð í samræmi við 1. mgr. ef formaður telur að efnislegur vafi sé á hvort 36. gr. eða 1. eða 2. mgr. 37. gr. eigi við.
2. gr.
a. Á eftir orðunum „Þjóðskrá Íslands“ í 1. mgr. kemur: barnaverndaryfirvöldum.
b. Á eftir 2. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Stofnunum skv. 1. mgr. er heimilt að samkeyra og miðla persónuupplýsingum til að tryggja hagsmuni barns við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála og lögreglu við framkvæmd ákvarðana samkvæmt lögum þessum.
3. gr.
a. Orðin „í tvígang“ í 1. málsl. falla brott.
b. 2. málsl. orðast svo: Forsenda þess að beita megi þessu úrræði er að við boðun hafi Útlendingastofnun gert umsækjanda fullnægjandi grein fyrir afleiðingum fjarveru eigi hún sér ekki réttmætar ástæður.
c. Lokamálsliður orðast svo: Boðað skal til viðtals með sannanlegum hætti.
4. gr.
a. 2. mgr. orðast svo:
Heimild til dvalar þegar umsækjandi er undanþeginn áritunarskyldu gildir þar til umsækjandi hefur dvalið í 90 daga á Schengen-svæðinu. Undantekningar a–c-liðar 1. mgr. gilda meðan umsækjandi hefur heimild til dvalar á grundvelli gildrar vegabréfsáritunar eða á grundvelli dvalar án áritunar. Útlendingastofnun getur veitt umsækjendum á grundvelli a- og b-liðar 1. mgr. heimild til lengri dvalar meðan umsókn er í vinnslu.
b. Í stað orðanna „skv. 3. mgr.“ í 5. mgr. kemur: skv. 1. og 3. mgr., m.a. um áhrif fyrri dvalar umsækjanda hér á landi á beitingu undanþáguheimilda.
5. gr.
6. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Óafgreiddum umsóknum um dvalarleyfi skal þá vísað frá.
b. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Endurkomubann hefst þann dag sem útlendingur er færður úr landi eða útlendingur fer af sjálfsdáðum af landi brott.
7. gr.
8. gr.
Stjórnvald og undirbúningur máls.
Lögregla undirbýr mál sem Útlendingastofnun tekur ákvörðun um. Nú telur lögregla skilyrði vera til að vísa útlendingi frá landi eða úr landi og sendir hún þá Útlendingastofnun gögn málsins til ákvörðunar.
9. gr.
Úrskurðir héraðsdóms samkvæmt þessari grein sæta kæru til Landsréttar. Um málskotið fer samkvæmt almennum reglum um meðferð sakamála.
II. KAFLI
Breyting á lögum um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi, nr. 16/2000, með síðari breytingum.
10. gr.
a. Í stað orðanna „a-lið 1. mgr. 20. gr.“ í 1. tölul. kemur: a-lið 1. mgr. 98. gr.
b. Í stað orðanna „b-, c- eða d-lið 1. mgr. 20. gr.“ í 2. tölul. kemur: b-, c- eða d-lið 1. mgr. 98. gr.
11. gr.
12. gr.
13. gr.