Ferill 540. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 884  —  540. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um heildarkostnað við byggingu nýja sjúkrahótelsins við Hringbraut.

Frá Þorsteini Víglundssyni.


     1.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við byggingu nýja sjúkrahótelsins við Hringbraut?
     2.      Hver var áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna í kjölfar útboðs í september 2015?
     3.      Sé heildarkostnaður framkvæmdanna ekki eins og upphaflega var áætlað, til hvaða orsaka má helst rekja muninn?


Skriflegt svar óskast.