Ferill 709. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1133 — 709. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um eflingu græns hagkerfis.
Frá Oddnýju G. Harðardóttur.
1. Hverjum af tillögum nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins hefur verið hrundið í framkvæmd, sbr. þingsályktun nr. 16/140 frá 20. mars 2012 og aðgerðaáætlun um eflingu græna hagkerfisins á Íslandi sem verkefnastjórn skilaði til forsætisráðuneytisins 30. janúar 2013 á grundvelli ályktunar Alþingis?
2. Hverjar af framangreindum aðgerðum eru enn í vinnslu?
Skriflegt svar óskast.