Ferill 725. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1153  —  725. mál.




Fyrirspurn


til forseta Alþingis um auglýsingar á samfélagsmiðlum.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða útgjöld hefur Alþingi haft ár hvert frá árinu 2015 vegna auglýsinga eða kostaðrar dreifingar á samfélagsmiðlum, svo sem á Facebook, Instagram, YouTube og Twitter?
     2.      Hvaða stefnu hefur forseti Alþingis að því er snertir auglýsingakaup á samfélagsmiðlum?


Skriflegt svar óskast.