Ferill 738. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1166  —  738. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fjölda lögreglumanna 1. febrúar 2019.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


     1.      Hversu margir lögreglumenn störfuðu við hvert lögregluembætti 1. febrúar 2019? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda fullmenntaðra lögreglumanna, fjölda afleysingafólks í lögreglu og fjölda héraðslögreglumanna.
     2.      Hver var fjöldi ársverka hvers lögregluembættis 1. febrúar 2019?
     3.      Hver var heildarkostnaður hvers lögregluembættis við stöðugildi lögreglumanns 1. febrúar 2019?
     4.      Hversu margir rannsóknarlögreglumenn störfuðu við hvert lögregluembætti 1. febrúar 2019?


Skriflegt svar óskast.