Ferill 729. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1549  —  729. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um auglýsingar á samfélagsmiðlum.


     1.      Hvaða útgjöld hafa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og stofnanir sem undir ráðherra heyra haft ár hvert frá árinu 2015 vegna auglýsinga eða kostaðrar dreifingar á samfélagsmiðlum, svo sem á Facebook, Instagram, YouTube og Twitter?
    Útgjöld atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins (ANR) og stofnana sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna auglýsinga eða kostaðrar dreifingar á samfélagsmiðlum á árunum 2015–2019 má sjá í eftirfarandi töflu. Allar fjárhæðir eru án virðisaukaskatts.

2015 2016 2017 2018 2019 Samtals:
ANR 0 61.222 31.133 131.622 49.069 273.046
Fiskistofa 0 0 0 12.123 24.200 36.323
Hafrannsóknastofnun 0 0 0 0 0 0
Matvælastofnun 0 0 0 21.000 5.200 26.200
Samtals: 0 61.222 31.133 164.745 78.469 335.569

     2.      Hvaða stefnu hefur ráðherra að því er snertir auglýsingakaup á samfélagsmiðlum?
    Af hálfu ráðherra hefur ekki verið mótuð stefna um auglýsingakaup ráðuneytisins á samfélagsmiðlum.

     3.      Hvernig telur ráðherra það að kaupa auglýsingar eða kostaða dreifingu á erlendum samfélagsmiðlum samræmast stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla íslenska fjölmiðla?
    Markmið ríkisstjórnarinnar um eflingu fjölmiðla tekur til starfsumhverfis fjölmiðla í víðu samhengi, sbr. skýrslu mennta- og menningarmálaráðuneytisins um rekstrarumhverfi fjölmiðla frá árinu 2018 og drög að frumvarpi mennta- og menningarmálaráðherra um opinberan fjárstuðning við öflun og miðlun frétta og fréttatengds efnis sem kynnt hefur verið í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Auglýsingamarkaðurinn skiptir þar miklu máli ásamt öðru og er mikilvægt að gagnsæi ríki um kaup opinberra aðila á auglýsingum, sbr. umfjöllun í framangreindri skýrslu mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Einnig er mikilvægt til lengri tíma litið að fylgst verði með þróun auglýsingamarkaðar og hlutdeild samfélagsmiðla á honum og hvaða áhrif markaðshlutdeild slíkra miðla hefur á auglýsingatekjur annarra fjölmiðla. Eins og sjá má af svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar hefur umfang auglýsingakaupa og kostaðrar dreifingar á samfélagsmiðlum hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og stofnunum sem undir það heyra verið takmarkað á umliðnum árum. Verður ekki séð að svo stöddu að slík hófleg auglýsingakaup raski stefnu ríkisstjórnarinnar um eflingu íslenskra fjölmiðla.