Ferill 55. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Nr. 43/149.
Þingskjal 1938 — 55. mál.
Þingsályktun
um skilgreiningu auðlinda.
Alþingi ályktar að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að fá sérfræðinga á sviði auðlindaréttar, umhverfisfræða og umhverfisréttar til að semja frumvarp til laga sem skilgreini hvað flokkast til auðlinda hér á landi og hverjar auðlindir Íslands eru.
Frumvarpið verði lagt fram á 150. löggjafarþingi.
Samþykkt á Alþingi 20. júní 2019.