Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 201 — 195. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um afborganir og vaxtagreiðslur ríkissjóðs.
Frá Ólafi Ísleifssyni.
1. Hver var samanlagður höfuðstóll verðtryggðra lána ríkissjóðs við lok hvers árs á tímabilinu 2012–17?
2. Hverjar voru fjárhæðir greiðslna vaxta og afborgana á verðtryggðum lánum ríkissjóðs á sama tímabili?
3. Hver hefði samanlagður höfuðstóll lánanna verið við lok hvers árs 2013–17 ef húsnæðisliður vísitölunnar hefði legið utan hennar?
4. Hverjar hefðu verið fjárhæðir greiðslna vaxta og afborgana á lánunum á árunum 2013– 17 ef húsnæðisliðurinn hefði ekki verið hluti af vísitölunni?
Skriflegt svar óskast.