Ferill 36. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 36  —  36. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um breytingu á lagaákvæðum um skipta búsetu barna.

Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.


     1.      Er vinna hafin við breytingu á barnalögum og öðrum lögum er varða skipta búsetu barna, sbr. svar félags- og jafnréttismálaráðherra á 148. þingi (þskj. 299, 107. mál)?
     2.      Hvenær telur ráðherra líklegt að slíkt frumvarp verði tilbúið til framlagningar?
     3.      Hafa vaknað ný álitamál sem líkleg eru til að tefja gerð frumvarpsins og ef svo er, hver eru þau?


Skriflegt svar óskast.