Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 486  —  375. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um rafræna stjórnsýslu við afgreiðslu dvalarleyfa.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Er hafinn undirbúningur að rafrænni stjórnsýslu við afgreiðslu dvalarleyfa hjá Útlendingastofnun?
     2.      Hefur verið lagt mat á kostnað við að innleiða rafræna stjórnsýslu á þessu sviði?
     3.      Hvaða kostir gætu fylgt slíkri innleiðingu annars vegar fyrir stjórnvöld og hins vegar fyrir notendur þjónustunnar?