Ferill 517. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 847 — 517. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um aðgerðir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
Frá Olgu Margréti Cilia.
1. Til hvaða aðgerða hefur ráðherra gripið eða hyggst grípa í því skyni að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda í íslenskum iðnaði? Óskað er eftir upplýsingum um allar þær aðgerðir sem er lokið, eru þegar hafnar eða eru fyrirhugaðar.
2. Hefur ráðherra í huga að beita hagrænum hvötum til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda? Ef ekki, hvers vegna ekki?
Skriflegt svar óskast.